Terms of service

  1. Skilgreining
  • Seljandi er 290194-2379 ( Sidmenning.is ),  Virðisaukanúmer ********
  • Heimilisfang: Fiskislóð 31
  • Símanúmer: 784-6636
  • Netfang: hygge@hygge.is
  • Djus ltd. ( Sidmenning.is ) áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

 

  1. Afhending vöru
  • Allar pantanir eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun.
  • Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar.
  • Ef pantað er vöru sem er í forpöntun ásamt öðrum vörum sem til eru á lager þegar pöntun er lagt fram verður pakki ekki sendur af stað ef valið er póstsendingu fyrr en að forpöntunarvaran er komin á lager.
  • Ef afhendingu seinkar mun seljandi tilkynna það til kaupanda ásamt upplýsingum um hvenær pöntunin verður tilbúin til afhendingar eða bjóða staðgengilsvörur ef að varan er uppseld.
  • Eðlilegur afhendingatími vöru eru 1-7 virkir dagar frá því að pöntun hefur verið staðfest og er það mismunandi eftir vöru.
  • Af öllum pöntunum dreift af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Djus ltd. ( Sidmenning.is ) ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Djus ltd. ( Sidmenning.is ) til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.

 

  1. Pöntun
  • Pöntun eru bindandi þegar hún er skráð á netþjón seljanda. Það gerist þegar kaupandi hefur staðfest pöntun.
  • Kaupandi fær senda staðfestingu á kaupum þegar pöntun er skráð. Kaupanda er bent á að kynna sér gaumgæfilega pöntunarstaðfestingu þegar hún berst. Einnig ætti að ganga úr skugga um að hún sé í samræmi við fyrirhugaða pöntun.
  • Seljandi er einnig bundinn til að afgreiða pöntun kaupanda svo lengi sem hún er í samræmi við vöruúrval og verðlagningu. Allar pantanir þar sem grunur um að brögð séu í tafli og/eða þar sem hugbúnaðargalli hefur áhrif eru afturkallaðar.
  • Kaupandi hefur 3 mánuði til að sækja vöru eftir að tilkynning hefur borist kaupanda. Ef pöntunin er ekki sótt innan 3 mánaða þ.e.a.s 90 dögum eftir kaup dettur pöntunin úr kerfi og erum við ekki lengur skuldbunin að afhenda vöru.

 

  1. Upplýsingar
  • Seljandi veitir upplýsingar um vörur eftir bestu vitund hverju sinni.
  • Seljandi birtir allar upplýsingar með fyrirvara um bilanir, vírusa, prent-, birtingar- og innsláttarvillur í texta, verðum og myndum.

 

  1. Verð
  • Siðmenning.is áskilur sér rétt til að breyta verði án fyrirvara og undangenginnar tilkynningar.
  • Villur í verði geta orðið til fyrir slysni og eru ekki bindandi fyrir Siðmenning.is  og er okkur heimilt að breyta því án frekari útskýringa
  • Verðhækkanir sem og verðlækkanir er eiga sér stað eftir pöntun viðskiptavinar eru ekki afturkræfar. Það verð gildir sem var í gildi þegar pöntun var gerð og kemur fram á pöntunarstaðfestingu.
  • Heildarkostnaður er tekinn fram áður en kaupandi staðfestir pöntun endanlega.
  • Öll verð eru gefin upp í Íslenskum krónum og með virðisaukaskatti.

 

  1. Gölluð vara
  • Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir. Eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.

 

  1. Greiðsla
  • Við tökum á móti: VISA og Mastercard
  • Hægt er að inna greiðslu af hendi með bankamillifærslu.
  • Pöntun er ekki staðfest fyrr en greiðsla er innt af hendi.
  • Ef að sölu hefur orðið og vara ekki fáanleg, er kaupanda boðið uppá endurgreiðslu, aðra sambærilega vöru eða að bíða eftir að vara verði fáanleg.
  1. Yfirferð á vörum
  • Eðlilegur athugunartími viðskiptavinar telst vera innan 30 daga.
  • Eftir 30 daga áskilur seljandi sér rétt til að sannreyna staðhæfingu kaupanda innan eðlilegra tímamarka áður en leyst er úr umkvörtunarefni kaupanda.
  1. Réttur við galla 
  • Ef að varan er gölluð eða það vantar eitthvað í vöruna er seljanda skylt að bjóða kaupanda viðgerð eða nýja vöru.
  • Tilkynning á galla verður að berast skriflega til hygge@hygge.is. Mælt er með að tilkynningin berist innan 30 daga frá því galli uppgötvast. 
  • Seljandi áskilur sér rétt til að sannreyna að varan sé gölluð, þó innan eðlilegra tímamarka.
  1. Ábyrgð
  • Ábyrgðir seljanda hafa ekki í för með sér takmarkanir á rétti sem á er kveðið um í lögum um neytendakaup.
  • Ábyrgð vegna galla á vöru er 2 ár eftir kaupdagsetningu, nema að annað sé tekið fram.
  • Ábyrgð er ekki staðfest nema að kaupnótu eða umbúðum vöru sé framvísað. 
  • Ábyrgðin nær ekki til eðlilegs slits.
  • Ábyrgð fellur úr gildi ef vara hefur verið opnað eða átt hefur verið við hana án yfirumsjónar/samþykkis seljanda þrátt fyrir að þar hafi verið að verki verkstæði og/eða viðurkenndur aðili.
  • Ábyrgðin fellur einnig niður ef rekja má bilun til illrar eða rangrar meðferðar.
  • Seljandi er ekki skuldbundinn til að taka þátt í viðgerðarkostnaði eftir 2 ára ábyrgðartíma.
  • Seljandi áskilur sér rétt til að sannreyna að galli eða bilun heyri undir ábyrgðarskilmála, þó innan eðlilegra tímamarka.